Fréttir

Aðgangur að Snöru

Nemendur FG hafa aðgang að uppflettiritum Snöru frá staðarneti skólans. Nemendur geta keypt ársaðgang að Snöru til að hafa heima á aðeins 990 kr. Nemendur þurfa að skrá sig inn á Snöru með Microsoftinnskráningu og skólanetfanginu.
Lesa meira

Skólastarf í byrjun haustannar 2020

Framan af önn mun allt skólastarf litast af sóttvörnum. Grunnstoðir þess starfs eru eftirfarandi: • Takmarka smitleiðir og samneyti meðal nemenda og starfsmanna. • Veikir nemendur og starfsmenn koma ekki í skólann. • Viðhafa gott hreinlæti og sóttvarnir.
Lesa meira

Margir sóttu um í FG fyrir haustið

Innritun nýnema í Fjölbrautaskólann í Garðabæ fyrir skólaárið 2020-2021 er nú lokið. Skólanum bárust afar margar umsóknir eða 630 talsins. Samtals voru um 200 nemendur innritaðir á átta brautir skólans og það var erfitt að þurfa að hafna góðum nemendum en við óskum þeim velfarnaðar. Við afgreiðslu umsókna var horft til einkunna í ensku, íslensku og stærðfræði auk frammistöðu í greinum sem tengjast umsóknarbraut. Við bjóðum alla nýnema innilega velkomna í FG og við hlökkum til að sjá ykkur í haust.
Lesa meira

Egill Andrason dúx á vorönn 2020

Brautskráning á vorönn 2020 fór fram í Urðarbrunni laugardaginn 30.maí kl. 11.00, að viðstöddum brautskráningarefnum, helstu stjórnendum og tækniliði skólans. Kóvid-veiran illskeytta setti því mjög svip sinn á þessa hátíðlegu athöfn, sem send var út beint á netinu fyrir aðstandendur. Kennarar biðu á kennarastofu skólans og fögnuðu síðan nemendum utandyra í lok athafnar. Allt þetta breytti því þó ekki að hátíðlegur andi sveif yfir vötnum og athöfnin hin ánægjulegasta. Alls voru 103 nemendu er sem kvöddu FG að þessu sinni, en af þeim voru 100 sem brautskráðust af stúdentsbrautum. Dúx að þessu sinni var Egill Andrason af listnámsbraut, með 9,5 í meðaleinkunn. Alls voru sex nemendur í hópnum með yfir 9,0 í meðaleinkunn. Þá flutti Egill ennfremur eigið lag og texta á athöfninni, Óðurinn til vináttunnar. Helga S. Jónsdóttir, Ugla Helgadóttir og Hrefna Hlynsdóttir fluttu einnig í byrjun athafnar lagið „Coming Home“ eftir Sigurjón Brink og Valgerður L. Guðmundsdóttir flutti fína ræðu nýstúdents. Fjöldi nemenda fékk svo hinar ýmsu viðurkenningar, bæði fyrir góðan árangur í námi og mætingu. Hér er textinn eftir Egil: Óðurinn til vináttunnar. Hlátrasköll ég heyri ennþá. Hróp og hamingja. Aðeins auðæfi úr manni mig umkringja. Framtíðar fortíðarþrá Finn ég grípa um mig leiði yfir að lífsgranni fari að færa sig. Þetta er óðurinn til vináttunnar Un þá sem ég hef átt og mun unna. Engin orð fá þeim lýst sem líf mitt um snýst. Saga eftir sögu, ævintýr, saman allt er best. Fyrir skilnað okkar um bið ég skilafrest. Við kaflaskiptum má alltaf við búast. Þú ert ekki alveg eins og þú varst en við njótum á meðan kostur er. Þetta er óðurinn til vináttunnar. Um þá sem ég hef átt og mun unna. Engin orð fá þeim lýst sem líf mitt um snýst. Í gegnum súrt og sætt mína daga litið svo skært. Á réttri stund, á réttum stað við komum saman. Er nú komið að kveðjukossum Ég kveð ykkur um hríð. Strembið er að sigra saknaðarstríð Þetta er óðurinn til vináttunnar Þá sem ég hef átt og mun unna. Engin orð fá þeim lýst sem líf mitt um snýst Í gegnum súrt og sætt mína daga litið svo skært. Á réttri stund, á réttum stað við komum saman.
Lesa meira

FG-nemar með rafræna sýningu á lokaverkefnum

Opnuð hefur verið ný vefsíða á vegum nemenda FG, en um er að ræða rafræna sýningu á lokaverkefnum nemendahóps af Hönnunar- og markaðsbraut, fatahönnun, myndlistasviði og leiklistasviði FG. Má segja að þetta sé í takti við þá þróun sem hefur verið í gangi undanfarið vegna Kórónaveirunnar, þ.e.a.s að fjölmargt sem ekki var rafrænt, er nú orðið það. Slóðin er: https://www.fglokaverkefni.com/ Skoðið og njótið!
Lesa meira

Sérnámsnemar grilluðu

Nemendur á Sérnámsbraut nýttu sér blíðuna þann 8.maí síðastliðinn og grilluðu sér góðgæti. Þeir eru nánast einu nemendurnir sem eru í skólanum, eftir að slakað var á samkomubanninnu fyrir skömmu. Með á myndinni eru þær Hrafnhildur og Guðmunda, sérkennarar. Gott að lífið er smám saman að færast í eðlilegt horf.
Lesa meira

Frumkvöðlanemar í FG fengu verðlaun

Nú eru úrslit kunn í keppni frumkvöðla sem fram fór um daginn og nemendur hjá Tinnu Ösp tóku þátt í. Alls átti FG fimm fyrirtæki í topp 25 í Fyrirtækjasmiðju ungra frumkvöðla. Fyrirtækið Draumaljós hreppti þriðja sætið og Mysey var valið besta matvælafyrirtækið. Flottur árangur og til hamingju!
Lesa meira

Frumkvöðlar frá Tinnu kepptu

Nemendur hjá Tinnu Ösp í frumkvöðlafræði tóku þátt í keppni frumkvöðla fyrir skömmu, en alls voru fyrirtækin frá FG alls 13 talsins. Undir venjulegum kringustæðum hefðu fyririrtækin sem nemendurnir sköpuðu haft sölusýningu í Smáralindinni, en það gekk ekki að þessu sinni vegna kórónaveirunnar. Þess vegna var fyrirkomulagið þannig núna að allir seldu á netinu (eins og allir eru að gera núna). Einnig sendu liðin/fyrirtækin inn myndbönd. Úrslit verða tilkynnt þann 6.maí næstkomandi.
Lesa meira

Páskakveðjur til nemenda FG

Okkur langaði að senda ykkur kveðju inn í páskafríið. Þið eruð búin að standa ykkur frábærlega síðustu vikur. Gleðilega páska
Lesa meira

Tilkynning frá skólameistara FG, föstudaginn 27.mars 2020

Kæru nemendur og forráðamenn. Nú eru komnar tvær vikur síðan hurðinni var lokað í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ eins og í öðrum framhaldsskólum landsins. Í einum vettfangi var kennslunni breytt í dreifnám. Eitthvað sem hafði ekki áður verið gert í FG. Kennt eftir stundatöflu, en með rafrænum hætti. Ég get ekki annað en dáðst að nemendum og kennurum. Báðir aðilar hafa sýnt hugmyndaauðgi og dugnað. Nú er ein vika fram að páskum og þá fá nemendur og kennarar verðskuldað hlé. Á þessari stundu vitum við ekki hvernig skólastarf verður eftir páska. Þó er rétt fyrir nemendur að búa sig undir það að kennslan verði með sama formi eftir páska. Þó vil ég taka skýrt fram að við gerum ráð fyrir að annarlok breytist ekki, við munum brautskrá nemendur 30. maí. Miðannarmat verður skráð í næstu viku og getið þið í lok vikunnar séð hvar þið, nemendur, standið. Talsvert er eftir af önninni og hvet ég ykkur sem alltaf áður að leggja ykkur fram og leita aðstoðar ef þið eruð í erfiðleikum. Foreldrum ráðlegg ég að fylgjast vel með námi og veita aðstoð. Oft er þörf en nú er nauðsyn, stuðningur foreldra getur skipt sköpum við svona aðstæður. Kæru nemendur þiggið þá aðstoð sem í boði er og leyfið foreldrum að fylgjast með. Kv, Kristinn Þorsteinsson skólameistari.
Lesa meira