Aðalfundur foreldraráðs 5. september 2024

Aðalfundur foreldraráðs FG

Fundargerð

Kaffistofa kennara, fimmtudagurinn 5. september 2024

Fundinn sátu:

  • Ragnhildur Scheving
  • Erla Hrönn Geirsdóttir
  • Hafsteinn Thorarensen
  • Elva Þöll, Tinna félagsmálafulltrúi
  • Hrefna Björk Ævarsdóttir
  • Linda Wessman
  • Jóna Ellen Valdimarsdóttir
  • Berglind forvarnarfulltrúi
  • Lilja Ýr Halldórsdóttir

Fundarritari: Lilja Ýr Halldórsdóttir

Fundarmálefni:

  1. Kynnast.
  2. Tinna félagsmálafulltrúi segir frá félagslífi nemenda.
  3. Kosningar (formaður, varaformaður, ritari).
  4. Á döfinni.
  5. Önnur mál.

 

  1. Kynnast:
    • Allir kynna sig.
  2. Tinna félagsmálafulltrúi segir frá sínu starfi og félagslífi nemenda:
    • Félagsmálafulltrúi nemendanna frá 2011.
    • Vinnur á skólaböllunum ásamt einum öðrum starfsmanni frá skólanum. FG skólaböllin hafa að jafnaði farið vel fram.
    • Tengiliður FG við nemendafélagið, fundar með þeim vikulega. Er nemendum til halds og traust. Eru margar nefndir í gangi, félagsmálafulltrúi hvetur nemendur til að nýta skólann fyrir ólíka viðburði, hvetur þau þó einnig til að taka flestar ákvarðanir sjálf varðandi félagslífið sitt. Skólinn er alltaf tilbúinn til að halda kennaravakt á eftirmiðdögum/kvöldum ef nemendur óska eftir að halda viðburði.
    • Nemendur hafa t.d. verið með vökukvöld, Bingó, ýmiss skemmtikvöld, söngkeppni, Morfís, FG-Flensborg daginn o.fl.
    • Nemendafélagið fær vissa upphæð á önn til að fjármagna félagslífið.
    • Tinna upplýsir um að það hafi aldrei verið jafn mikil aðsókn í að vera nýnemafulltrúi í hinum ólíku nefndum í ár.
    • Tinna hvetur foreldrafélagið til að koma með hugmyndir að félagsstarfi sem hægt er að koma til nemenda.
  3. Kosningar í stjórn foreldraráðs:
    • Linda býður sig fram sem formann áfram og er kosinn áfram til eins ár.
    • Erla býður sig fram sem varaformann og í skólanefndina og er kosin áfram til eins árs.
    • Lilja Ýr býður sig fram áfram sem ritara og er kosin áfram til eins árs.
    • Sigrún Jósepsdóttir fjármálastjóri FG er gjaldkeri fyrir foreldrafélagið.
  4. Á döfinni:
    • Busaball 19. september. Óskandi að 3 foreldrar standi vakt þegar ballið er að byrja, frá ca 22-23. Skráning á vakt mun fara fram á Facebook síðu foreldraráðsins.
    • Salsaball í desember.
    • Valgreiðsla til styrktar foreldrafélaginu verður sendur til foreldra nemenda í skólanum. Berglind skrifar upplýsingapóst um greiðsluna og sér til þess að hann verði sendur til allra foreldra.
    • Umræða um að fá Þórdísi Elvu aftur með fræðslu fyrir nemendur. Hugsanlegt að foreldrafélagið komi að fjárhagsstuðningi fyrir þá fræðslu.
  5. Önnur mál:
    • Umræða um málmleitartæki á skólaböllum. Sameiginleg ákvörðun í samfélaginu hefur verið tekin um að notuð verði málmleitartæki á öllum framhaldsskólaböllum á landinu.
    • Foreldraráðssjóðurinn stendur í 262.618 kr.
    • Tekin er ákvörðun um að hækka valgreiðslu til styrktar nemendafélaginu úr 3000 kr. upp í 3500 kr.
    • FG átti 40 ára afmæli 1. ágúst. Berglind tekur að sér að ræða við Kristinn skólameistara um hvenær og hvernig er áætlað að halda upp á afmælið.
    • Allir meðlimir foreldraráðsins gefa upp netfangið sitt á Facebook síðu foreldraráðsins. Linda leggur út beiðni um það á Facebook síðuna.
    • Lilja Ýr leggur fundargerð á Facebook síðu foreldraráðsins og foreldrafélagsins, sendir hana einnig til Berglindar. Berglind biður tæknimann skólans að leggja fundargerðina út á heimasíður skólans.

Næsti fundur verður fimmtudaginn 21. nóvember kl.17.30 á kennarastofunni í FG.