Verklag um tilkynningarskyldu starfsmanna Fjölbrautaskólans í Garðabæ
til barnaverndarnefnda
Í samræmi við ákvæði barnaverndarlaga nr. 80/2002 og í samræmi við verklagsreglur um tilkynningarskyldu, útg. 18.12.2006 ber starfsmönnum skólans að tilkynna skólameistara, aðstoðarskólameistara, áfangastjóra eða náms- og starfsráðgjafa verði þeir varir við að barn í hópi nemenda skólans:
- búi við óviðunandi uppeldisskilyrði
- verði fyrir áreitni eða ofbeldi
- stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu
Skólameistari tekur ákvörðun um framgang máls í samráði við aðstoðarskólameistara, áfangastjóra og náms- og starfsráðgjafa.
Endurskoðað og breytingar samþykktar í skólaráði 5.01.2022.