27.02.2024
Listalífið í FG er blómlegt og það sást vel í Söngvakeppni RÚV fyrir Eurovision í ár, en fyrir þá sem ekki vita fer keppnin fram í Malmö í Svíþjóð seinna í vor.
Fjölmarg listafólk, sem með einum eða öðrum hætti hefur tengingu við FG, kom fram í keppninni, en hér er flottur listi:
Sigga Ózk var með lagið Um allan alheiminn. Hún semur bæði lag og texta í samvinnu við fleiri. Komst hún í úrslit.
Sunny (Sunna Kristinsdóttir) var með lagið Fiðrildi, bæði lag og texti, en í samvinnu við fleiri.
Antía (Rós Þorsteinsdóttir) flytur lagið Stingum af og í laginu dansaði systir hennar, Ísabella. Lagið komst í úrslit.
Inga Birna Friðjónsdóttir og hljómsveitin Blankiflúr eru með lagið Sjá þig /Love you
Þá er Matthías Davíð Matthíasson með lagið Bíómynd. Lagið semur hann í félagi við bróður sinn, Hálfdán Helga. Það lag komst í úrslit.
Af þessu öllu má því draga þá ályktun að FG sé eins konar ,,framleiðslustaður” fyrir listamenn og þrjú lög af fimm sem verða í úrslitum laugardaginn 2.mars hafa einhverja þræði sem liggja til FG. Ekki galið, reyndar alveg frábært!
Lesa meira
20.02.2024
Lið FG lauk keppni að þessu sinni í Gettu betur þegar liðið mætti ríkjandi
meisturum, MR í sjónvarpssal fimmtudaginn 15.febrúar.
Viðureignin var nokkuð sveiflukennd, en lauk síðan með því að MR sigraði með
aðeins fjögurra stiga mun, 30-26.
Fram kom í þættinum að þau Patrik, Aron og Brynja eru öll að útskrifast í vor
og því verður FG með splunkunýtt lið í næstu keppni, að ári.
Eru þeim hér með færðar kærar þakkir fyrir góða keppni
og óskir um gott gengi í framtíðinni. Takk fyrir okkur!
Lesa meira
15.02.2024
Hér er póstur sem sendur var til nýrra nemenda á vorönn 2024.
Lesa meira