Sérúrræði í námi í FG

Nemendur sem skilað hafa inn greiningum geta sótt um eftirfarandi þjónustu í prófum:

  • að fá prófin á lituðum pappír
  • stærra letur
  • próf í tölvu
  • hlustun á prófi með talþulu.

Sækja þarf um þessa þjónustu hjá námsráðgjöfum og er umsóknarfrestur auglýstur fyrir hvert próftímabil.

Úrræðið er aðeins veitt eftir viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa sem styðst við sérfræðiálit þ.e. greiningar og eftir að nemandi hefur undirritað þennan samning.