Verðlaunafrumkvöðlar úr FG

Ungir frumkvöðlar úr FG gerðu það gott
Ungir frumkvöðlar úr FG gerðu það gott

Keppendur frá FG náðu góðum árangri þegar ungum frumkvöðlum voru veitt verðlaun fyrir skömmu.

Alls átti FG sex lið í úrslitum og bestum árangri náði fyrirtækið MARÍ-GULL, sem varð í öðru sæti og fékk verðlaun sem kallast "Besti sjó-bissnessinn" .

Fyrirtækið framleiðir lampa úr alíslenskum marígulkerum, sem eru veidd hér við land. Vel gert!