Stöðupróf í serbnesku

Stöðupróf í serbnesku verður haldið í FG þriðjudaginn 1. mars kl. 15:30. Skráning fer fram með því að senda póst á fg@fg.is

Skráningarfrestur er til 25. febrúar. Nauðsynlegt er að nafn og kennitala próftaka komi fram. Nemendur greiða 15.000 fyrir stöðuprófið.

Kennitala: 581286-1639

Bankaupplýsingar: 0318-26-13268

Réttur til próftöku byggist á því að prófgjald hafi verið greitt og auk þess verða próftakar að framvísa persónuskilríkjum með mynd þegar komið er í prófið.