Nemendur á vettvangi
Nemendur í fjölmiðlafræði hjá Gunnari Hólmsteini fóru í vettvangsferð hjá RÚV þann 2.október síðastliðinn. Það var Úlfur Grönvold leikmyndahönnuður sem færði hópinn í allan sannleikann um starfsemi RÚV og var meðal annars nýtt fréttastúdíó RÚV skoðað (sem er nánast alsjálfvirkt). Að því loknu var hópurinn svo viðstaddur upptöku á þættinum Fjörskyldan, sem hinn landsfrægi tónlistarmaður Jón Jónssonstjórnar með stæl. Þar var mikið fjör og læti, en upptökur gengu vel. Að þeim loknum var svo slegið upp pizzuveislu, þannig að allir fóru saddir heim.