Nemendur í listum sýna verk í FG
Í tilkynningu frá Listadeild FG kemur fram: ,,Verið hjartanlega velkomin á samsýningu nemenda í lokahóp myndlistarbrautar FG föstudaginn 14. - þriðjudagsins 18. maí í húsakynnum skólans, Skólabraut 6, 210 Garðabæ. Upplýsingaspjald um hvar einstök verk eru er í anddyri skólans.Sýningin verður opin kl. 8.10 – 16:00 en lokað um helgina. Aðgangur er ókeypis á sýninguna.
Sýningin er afrakstur vinnu 12 nemenda í lokaáfanga á Myndlistarsviði listnámsbrautar. Viðfangsefni þeirra eru ólík og hefur hver og einn þróað eigin aðferðir og efnistök. Nemendur sem eiga verk á sýningunni eru:
Aron Daði Jakobsson Rögnuson
Birta Dögg Snorradóttir
Dagbjört Anna Arnarsdóttir
Dagný Birta Dan Ólafsdóttir
Friðbjörg H Alexandersdóttir
Hrafnhildur Þór Árnadóttir
Inga Rún Svansdóttir
Jón Hákon Þórsson
Jónína Arndís Guðjónsdóttir
Ragnheiður Sól Haraldsdóttir
Sólrún Dís Valdimarsdóttir
Tinna Rúnarsdóttir
Athugið að aðgangur að verki Dagbjartar Önnu Arnarsdóttur í stofu F110 á fyrstu hæð er takmarkaður:
Föstudaginn 14.maí verður opinn aðgangur að verki hennar kl. 8.10-10.30 og aftur kl. 14.30-16.00
mánudaginn 17.maí verður síðan opið kl. 10.30-13.10 og aftur kl. 14.30-16.00
þriðjudaginn 18.maí verður opið kl. 12.35-16.00."