Anna Bíbí fékk verðaun frá Soroptimistum

Anna Bíbí tekur við verðlaununum.
Anna Bíbí tekur við verðlaununum.

Við hverja útskrift veitir Soroptimistafélag Hafnarfjarðar og Garðabæjar einum kvenstúdent frá FG verðlaun. Verðlaunin fær sá kvenstúdent sem sýnt hefur góðan árangur og framfarir í námi auk þess að setja mjög jákvæðan svip á skólalíf í FG á námstímanum.Á haustönn 2023 voru verðlaunin aðeins seinna á ferðinni en venja er, en þau hlaut Anna Bíbí Wium Axelsdóttir. Leitun er að einstaklingum með jafnmikla jákvæða útgeislun og Önnu Bíbí.

Á myndinni má sjá hana og Kristinn Þorsteinsson, skólameistara, er hún veitti verðlaununum viðtöku. FG óskar Önnu Bíbí velfarnaðar í framtíðinni.