framhaldsáfangi í efnafræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: EFNA2IE05
Fjallað um varmaefnafræði, skammtafræði og eiginleika efna. Einnig er fjallað um efnatengi, innan og milli sameinda, og byggingu sameinda.
Þekkingarviðmið
- grunnhugmyndum um orku og lögmálinu um varðveislu orkunnar
- innri orku og hvarfvarma
- rafeindaskipan atóma og jóna
- jónunarorku, rafeindafíkn og hvernig eiginleikar frumefna eru háðir stöðu í lotukerfinu
- áttureglunni og hvernig tákna má sameindir í fleti og teikna Lewis myndir
- rafneikvæðni, tengjum innan sameinda og milli jóna annars vegar og sameinda hins vegar
Leikniviðmið
- reikna orkubreytingar í efnahvörfum með mismunandi aðferðum
- skrifa rafeindaskipan atóma og jóna
- greina milli jónatengja, skautaðra samgildra tengja og samgildra tengja
- teikna Lewis myndir og nota þær til að finna líklegustu samsetningu og uppbyggingu sameindar
- greina á milli tengjagerða innan sameinda og milli sameinda
- skrifa skýrslur um tilraunir
Hæfnisviðmið
- meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar
- túlka efnatákn og efnajöfnur
- nýta hópavinnu til að leysa flóknari viðfangsefni
- sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
- setja niðurstöður úr verklegum æfingum fram á skýran hátt
- tengja efnafræðina við daglegt líf og umhverfi í auknum mæli
Nánari upplýsingar á námskrá.is