Valin bókmenntaverk
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ENSK3HR05
Áfanginn er fyrir nemendur sem hafa áhuga á bókmenntum. Lesin eru nýútgefin og eldri verk sem nemendur vinna með. Nemendur fá þjálfun í að lesa, skilja og skrifa texta.
Þekkingarviðmið
- bókmenntum í hinum enskumælandi heimi, leikhefðum, höfundum og skáldum.
- menningu í enskumælandi löndum.
- stjórnmálum, fjölmiðlum og sögu og áhrifum þeirra á þjóðfélagsmótun í þeim löndum þar sem enska er töluð.
- orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér lesefni í áframhaldandi námi og starfi tengdu leiklist og bókmenntum.
Leikniviðmið
- skilja vel texta á sviði leiklistar, s.s. lesefni, leiksýningar og leiklestur.
- lesa sér til ánægju eða upplýsingar texta sem gera miklar kröfur til lesandans, hvað varðar orðaforða og uppbyggingu, myndmál og stílbrögð.
- tjá sig af öryggi um málefni sem lúta að umfjöllun um bókmenntaverk, flutning þeirra og tjáningarmáta.
- læra texta og flytja fyrir áhorfendur.
- beita ritmálinu í mismunandi tilgangi, fræðilegum og persónulegum, með stílbrigðum og málsniði sem á við hverju sinni.
Hæfnisviðmið
- meta með gagnrýnum hætti texta, listrænt gildi hans, túlkunarmöguleika o.fl.
- nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um bókmenntir og leiklist
- átta sig á mismunandi málsniði og stíl í töluðu máli og undirliggjandi viðhorfum og tilgangi þess sem talar.
- greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt og/eða pólitískt samhengi í texta, s.s. í bókmenntaverkum og öðrum textum.
- flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð.
- nýta sér fræðitexta og meta heimildir á gagnrýninn hátt.
- beita málinu svo hann geti tekið þátt í umræðum og rökræðum.
- tjá tilfinningar, nota hugarflugið og beita myndmáli og stílbrögðum.
Nánari upplýsingar á námskrá.is