inngangur að félagsvísindum
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Markmið áfangans er að gefa yfirlit yfir viðfangsefni félagsvísinda og hlutverk þeirra sem vísindagreinar. Áherslan er lög á víxlverkun samfélags og einstaklinga.
Þekkingarviðmið
- mikilvægustu félagslegu festum samfélagsins og tilgangi þeirra
- mikilvægi fjölmiðla og áhrifa þeirra
- helstu þáttum íslenska stjórnkerfisins
- helstu hugtökum félagsvísinda
- hvað kynjafræði fæst við og hvernig kynjafræðin tengist öðrum greinum félagsvísindanna
Leikniviðmið
- beita helstu hugtökum félagsvísinda
- skilja áhrif fjölmiðla á skoðanamyndun og hegðun einstaklinga og hópa
- geta tjáð sig munnlega og skriflega á skilmerkilegan hátt
- greina helstu innviði íslenskrar stjórnsýslu,störf alþingis og sveitarstjórna
- greina hlutverk fjölskyldunnar,skólans og annarra helstu stofnana íslensks samfélags
- þekki og skilji áhrif félagsmótunar á þróun kynhlutverka
Hæfnisviðmið
- geta beitt sjónarhorni félagsvísinda á samfélagsleg málefni
- geta sett sig í spor annarra og nýtt til þess hugtök úr félagsvísindum
- afla sér upplýsinga um málefni áfangans, greina helstu atriði þeirra og geta hagnýtt sér þau
- greina valið fjölmiðlaefni með tilliti til markhópa og málefna
- vera betur meðvitaður um ýmsa samfélagslega og sálræna þætti sem hafa áhrif á líðan einstaklingsins, svo og á samferðarfólk hans
- meta málefni líðandi stundar á gagnrýninn hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is