lífeðlisfræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: LÍFF2LE05
Líffærakerfin með aðaláherslu á þvagfærakerfi, taugakerfi, innkirtlakerfi, æxlunarkerfi, skynfærin, stoð- og hreyfikerfið. Áhersla lögð á samhæfingu líffærakerfa.
Þekkingarviðmið
- byggingu og starfsemi nokkurra líffærakerfa
- samhæfingu og stjórnun líffærakerfa
Leikniviðmið
- skrifa skýrslur
- framkvæma einfaldar tilraunir
- finna sér áreiðanlegra heimilda á netinu og nýta þær til þekkingaröflunar
Hæfnisviðmið
- gera einfaldar mælingar og tilraunir á líkamsstarfsemi og draga ályktanir af þeim útskýra þekkingu sína í máli og myndum
- leita að áreiðanlegum heimildum á netinu og nýta þær til að leysa ýmis verkefni
- koma þekkingu sinni á framfæri
Nánari upplýsingar á námskrá.is