vistfræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: LÍFF1GÁ05 eða 7 eða hærra á grunnskólaprófi.
Fjallað um helstu hugtök og undirstöðuatriði fræðigreinarinnar með megin áherslu á Ísland. Farið er í helstu gerðir vistkerfa og rannsóknir á vistkerfum. Í áfanganum verður fjölbreytt verkefnavinna sem krefst vettvangsferða, vinnu á tilraunastofu og að nemendur afli sér upplýsinga af netinu og úr fræðibókum.
Þekkingarviðmið
- helstu hugtökum vistfræðinnar
- helstu gerðum vistkerfa
- efnahringrásum og orkuflæði um vistkerfi
- áhrifum lífrænna og ólífrænna þátta
- sérstöðu íslenskrar náttúru sökum landfræðilegrar legu og eldvirkni
- helstu hugtökum í stofnvistfræði og mikilvægi hennar
- landnámi lífvera og framvindu þeirra
- útbreiðslu lífvera.
- vistfræðirannsóknum og úrvinnslu gagna
Leikniviðmið
- beita hugtökum vistfræðinnar
- framkvæma einfaldar vistfræðirannsóknir
- nýta sér greiningarlykla til að greina lífverur
- túlka niðurstöður tilrauna og setja þær fram á skýran hátt
- skrifa rannsóknarskýrslur
- vinna með heimildir (bæði af netinu og úr bókum)
- fjalla um álitamál sem varða íslenska náttúru
Hæfnisviðmið
- tengja undirstöðuþekkingu í vistfræði við daglegt líf
- mynda sér skoðanir og afstöðu til mála sem snerta vistfræði
- gera einfaldar vistfæðirannsóknir og draga ályktanir af þeim
- kynna vistfræðileg málefni í ræðu og riti
Nánari upplýsingar á námskrá.is