Grunnáfangi
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar.
Líffræði sem snertir daglegt líf manna. Fjallað verður um líffræði sem fræðigrein, nokkur hugtök líffræðinnar, örverur, sníkjudýr, næringarfræði og kynfræði.
Þekkingarviðmið
- byggingu og starfsemi örvera (veira, baktería, frumdýra og sveppa)
- samspili örvera við aðrar lífverur í náttúrunni
- notagildi örvera og skaðsemi þeirra
- helstu sjúkdómum í mönnum, orsökum þeirra og vörnum gegn þeim
- undirstöðu í næringarfræði
- æxlun lífvera, bæði kynæxlun og kynlausri
- vistkerfum og tegunda fjölbreytni
Leikniviðmið
- lesa texta um líffræðileg málefni á netinu og í bókum og nýta þær til að leysa verkefni
- nota smásjár og víðsjár
- greina lífverur eftir greiningarlyklum
- þekkja muninn á ólíkum lífverum gera grein fyrir gagnsemi, nytsemi og skaðsemi þeirra í náttúrunni
Hæfnisviðmið
- lifa heilbrigðu líferni
- velja sér getnaðarvarnir
- koma í veg fyrir að matvæli skemmist af völdum örvera og komast hjá matarsýkingum
- greina einkenni ýmissa sjúkdóma af völdum örvera , sníkudýra og næringaskorts. Þekkja forvarnir og meðhöndlun sjúkdóma
- velja sér holla og næringaríka fæðu og forðast óhóf
Nánari upplýsingar á námskrá.is