EFNA3LR05 - Lífræn efnafræði

lífræn efnafræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: EFNA2FE05
Farið í grunnatriði lífrænnar efnafræði, eiginleika lífrænna efna, IUPAC nafngiftakerfið og efnahvörf lífrænna efna.

Þekkingarviðmið

  • skautun sameinda
  • svigrúmablöndun kolefnis
  • hendni sameinda
  • reglum IUPAC nafnakerfisins
  • grunnflokkun lífrænna efna
  • efnahvörfum lífrænna efna
  • uppbyggingu og eiginleikum fjöltengja

Leikniviðmið

  • ákvarða svigrúmablöndun kolefnis í mismunandi efnasamböndum.
  • nota flokkun og nafnakerfi lífrænna efna.
  • skrifa og túlka efnahvörf lífrænna efna.
  • sýna sjálfstæði við framkvæmd verklegra æfinga og skilning við úrvinnslu.

Hæfnisviðmið

  • sjá tengsl milli náttúrufræðigreina og geta yfirfært þekkingu milli þeirra
  • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
  • leggja mat á áreiðanleika niðurstaðna rannsókna sinna
  • tengja efnafræðina við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar
Nánari upplýsingar á námskrá.is