lífefnafræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: EFNA2FE05
Farið í undirstöðuatriði í lífefnafræði, helstu efnaferla frumunnar, t.d. sítrónusýruhringurinn og áhrif eiturefna á þessa ferla.
Þekkingarviðmið
- uppbyggingu og mismunandi gerðum kolvetna, lípíða og próteina
- kjarnsýrum, ensímum og hlutverki þeirra
- ATP og hlutverki þess í líkamanum
- helstu efnaferlum við niðurbrot orkuefna og nýtingu þeirra í líkamanum
- eiturefnum og áhrifum þeirra á efnaferla líkamans
Leikniviðmið
- teikna upp og skilja uppbyggingu próteina, sykra, lípíða og kjarnsýra
- lesa úr myndum af efnaferlum og efnahringrásum
- útskýra helstu efnaferli líkamans
Hæfnisviðmið
- sjá tengsl milli náttúrufræðigreina og geta yfirfært þekkingu milli þeirra
- sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
- tengja efnafræðina við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar
Nánari upplýsingar á námskrá.is