inngangur að efnafræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Kynning á efnafræði, rannsóknaraðferðum, eiginleikum efna og að vinna með tölur.
Þekkingarviðmið
- meðferð talna, markverðra stafa og eininga í náttúruvísindum
- uppbyggingu atóma, jóna og sameinda
- efnatáknum og helstu tegundum efnabreytinga
- mólhugtakinu og hlutföllum efna í efnajöfnum
- mólstyrk efna í vatnslausn
- helstu gerðum efnahvarfa
- eiginleikum gasa
Leikniviðmið
- meðhöndla tölur og mælistærðir í efnafræði
- nota lotukerfi og jónatöflu
- gefa einföldum efnasamböndum nafn
- setja upp efnajöfnu og stilla hana
- beita mólhugtakinu og vinna með tengsl þess við hlutföll í efnajöfnum
- framkvæma verklegar æfingar og vinna úr niðurstöðum
- nota gasjöfnuna og reikna hlutþrýsting
Hæfnisviðmið
- sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
- nota lotukerfi, jónatöflur og önnur gögn við lausn verkefna
- lesa úr efnatáknum og efnajöfnum
- gera sér grein fyrir samspili efnafræði, stærðfræði og annarra náttúrufræðigreina
- meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar og gera sér grein fyrir gildi endurtekninga
- tengja efnafræðina við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar
Nánari upplýsingar á námskrá.is