nútímaeðlisfræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: EÐLI2BV05
EÐLI2RA05
Í áfanganum eru nemendur látnir vinna með hugtök og þekkingu úr nútímaeðlisfræði. Samtímis því eru nemendur þjálfaðir í þeim vinnubrögðum sem notuð eru við nám í þessari grein. Nemendur vinna bæði sjálfstætt og saman í hópum og lögð er áhersla á sjálfstæði og ábyrgð nemandans á eigin námsframvindu.
Þekkingarviðmið
- snúningshreyfingu og kyrrstöðujafnvægi.
- 2. lögmáli Newtons fyrir snúningshreyfingu, lögmálinu um varðveislu hverfiþunga.
- takmörkuðu afstæðiskenningunni, tímalengingu og lengdarsamdrátti.
- lögmálinu um varðveislu orkunnar, fyrstu og annarri frumhæfingu takmörkuðu.
- afstæðiskenningarinnar og tengslum massa og orku.
- óvissulögmál Heisenbergs og skömmtun orku í atómum.
- kjarneðlisfræði
Leikniviðmið
- vinna með tölur og vigra í eðlisfræði og í vísindalegum vinnubrögðum.
- beita lögmálum og jöfnum við að leysa verkefni af ýmsu tagi.
- leiða út með rökrænum hætti jöfnu fyrir sambandi stærða frá gefnum forsendum.
- setja fram eðlisfræðilegt umfjöllunarefni á skýran og markvissan hátt í ræðu og riti.
- vinna með ýmis mælitæki, framkvæma reglulegar æfingar og vinna úr mæliniðurstöðum
Hæfnisviðmið
- sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu.
- nota námsefni og gögn á markvissan hátt.
- yfirfæra þekkingu úr öðrum greinum til að auðvelda námið.
- meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar.
- tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar.
Nánari upplýsingar á námskrá.is