TÍSK2TH05 - Tískuteikning og hugmyndavinna

hugmyndavinna, tískuteikning

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Engar.
Lögð er áhersla á notkun teikniáhalda, lita og pappírs. Kennd eru undirstöðuatriði í litafræði og formteiknun ásamt fríhendisteikningu og skissugerð. Tískugínur eru teiknaðar í mismunandi stærðum. Æfð er áferðarteikning og skyggingar með blýöntum og litum. Kynntar eru fjölbreyttar aðferðir við gerð óhefðbundinna tískuteikninga. Þema- og litaspjöld ásamt tískuteikningum eru unnar jafnt í höndum sem og í tölvum. Hugmynda- og skissuvinna er unnin út frá þema. Nemendur vinna í skissubækur yfir önnina. Verk íslenskra og erlendra tískuteiknara eru skoðuð.

Þekkingarviðmið

  • notkun teikniáhalda og mismunandi eiginleikum lita og pappírs
  • aðferðum við teikningu á tískugínum
  • þemaspjöldum, handgerðum sem og í tölvum
  • skissuvinnu sem hluta af ferli við hugmyndavinnu
  • vinnslu tískuteikninga í höndum og í tölvum
  • aðferðum við að ná fram áferðum og skyggingum í tískuteikningum
  • óhefðbundnum aðferðum og verkfærum við teikningu
  • mikilvægi ferilmöppu
  • mikilvægi stöðugra æfinga til að ná framförum í teikningu
  • íslenskum og erlendum tískuteiknurum

Leikniviðmið

  • nota ýmis teikniáhöld og liti við gerð tískuteikninga
  • nota óhefðbundnar aðferðir við teikningu
  • útbúa þema- og litaspjöld jafnt í höndum og í tölvu
  • vinna hugmyndavinnu og teikna skissur út frá þema
  • nota tölvur við uppsetningu og frágang á tískuteikningum
  • beita aðferðum til að ná fram áferðum og skyggingum í teikningum
  • setja fram hugmyndir og ganga frá verkefnum í ferilmöppu
  • skoða og læra af erlendum og íslenskum tískuteiknurum

Hæfnisviðmið

  • vinna með þema- og litaspjöld og vinna úr hugmyndum í skissuformi
  • setja hugmyndir sínar og teikningar upp á fjölbreyttan hátt í höndum og í tölvum
  • teikna fjölbreyttar tískuteikningar og nota óhefðbundnar aðferðir til að ná fram stíl
  • setja tískuteikningar sínar upp til sýningar
  • vinnu hugmynda út frá þema
Nánari upplýsingar á námskrá.is