aðferðir, verkstæði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Engar.
Í áfanganum læra nemendur um mismunandi textílhráefni, flokkun þeirra og eiginleika. Kynntar verða aðferðir við að vinna textíl t.d. þæfing, prjón og hekl og aðferðir við að lita textíl, stenslun og að þrykkja á efni. Nemendur skoða hvernig hægt er að nota þessar aðferðir á skapandi og óhefðbundinn hátt í hönnun. Skoðað er hvaða atriði er mikilvægt að hafa í huga þegar hanna á textílefni. Farið er í vettvangsferðir eftir því sem tækifæri gefast á sýningar og í fyrirtæki.
Þekkingarviðmið
- mismunandi hráefnum og eiginleikum þeirra
- framleiðsluferli hráefna úr trefjum í voðir
- helstu vefnaðargerðum og sérkennum þeirra
- helstu eftirmeðhöndlunum efna og hvaða breytingar þær hafa á efni
- gömlum íslenskum handbrögðum við ullarvinnslu
- alþjóðlegum meðferðarmerkingum og meðhöndlun efna
- heimstextíl og mismunandi aðferðum þjóða við vinnslu á honum
- mismunandi aðferðum við að vinna textíl eins og þæfingu, prjón og hekl
- mismunandi aðferðum við að lita efni, þrykkja og stensla
- hönnun textílefna og mikilvægum atriðum í því sambandi
Leikniviðmið
- greina á milli helstu vefnaðargerða
- útskýra framleiðsluferli textílhráefna
- lesa alþjóðlegar meðferðarmerkingar á textíl
- lita efni með mismunandi aðferðum, stensla, þrykkja og mynstra
- þæfa, prjóna og hekla einfaldar prufur
- fjalla um íslensku ullina og séríslensk handbrögð við vinnslu hennar
- nýta sér mismunandi aðferðir til að útfæra eigin hönnun á skapandi og óhefðbundinn hátt
Hæfnisviðmið
- Nýta sér þæfingu, hekl og prjón í eigin hönnun og listsköpum
- meðhöndla textílefni á réttan hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is