FATA1ST05 - Saumtækni

saum, tækni

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: FATA1SS05
Nemendur læra að vinna með stærðartöflur, grunnsnið og sniðútfærslur. Lögð er áhersla á saumtækni með ýmsum gerðum af prufusaumi og læsi á vinnulýsingar í texta og myndum. Farið er sérstaklega í notkun á saumavélum, overlockvélum og straujárni. Unnið er með samspilið á milli tískuteikninga, flatra vinnuteikninga og sniðútfærslna. Kennd er tenging sniða og efna varðandi teygjanleg og föstofin efni. Nemendur læra að mæla efnismagn fyrir flíkur út frá sniðum og notkun á flísilíni, tvinnagerðum og öðru tilleggi varðandi saumaskap og frágang. Saumaðar eru 1-2 flíkur og lögð áhersla á mátun og leiðréttingu sniða. Nemendur tileinka sér skipulagt vinnuferli og vandaðan frágang og læra uppsetningu vinnulýsinga, tískuteikninga og flatra vinnuteikninga.

Þekkingarviðmið

  • uppbyggingu grunnsniða
  • heiti sniðhluta, þráðréttu og mikilvægi saumamerkinga á sniðum
  • einföldum og flóknum sniðútfærslum í stöðluðum stærðum
  • notkun grunnsniða til að útfæra einfaldar flíkur
  • vinnulýsingum í texta og myndum
  • flötum vinnuteikningum við vinnslu á sniðum
  • saumtækni með prufusaumi s.s rennilásum og vösum
  • samspili efna og útfærslu sniða
  • aðferðum til að ákvarða efnismagn í flíkur út frá sniðum
  • vönduðum vinnubrögðum

Leikniviðmið

  • vinna ýmsar sniðútfærslur út frá grunnsniðum í stöðluðum stærðum í minni hlutföllum
  • nota heiti sniðhluta markvisst og nota saumamerkingar á sniðum
  • útfæra og sauma flíkur eftir eigin málum
  • nýta sér vinnulýsingar í texta og myndum við prufusaum
  • koma hugmyndum af flíkum á blað
  • ákvarða samspil efnis og útfærslu sniða
  • ákvarða efnismagn sem þarf í flík út frá sniðum
  • vanda vinnubrögð við alla þætti vinnuferlisins

Hæfnisviðmið

  • vinna sjálfstætt einfaldar sniðútfærslur út frá grunnsniðum
  • sauma einfaldar flíkur eftir eigin sniðútfærslum
  • vinna eftir vinnulýsingum í máli og í myndum
  • sjálfstætt ákvarða efnismagn og tillegg sem þarf í flík samkvæmt sniðum og vinnulýsingu
  • vanda vinnubrögð við alla þætti vinnuferilsins frá hugmynd að tilbúinni flík
Nánari upplýsingar á námskrá.is