þrívídd
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: SKÚL2GR05
Í áfanganum verða unnin þrívíð myndverk. Í áfanganum verður unnið í ólík efni. Möguleikar innsetninga og ýmiss konar samsetninga kannaðir og innsetningarhugtakið kynnt. Unnið með arkítektúr og vinna arkítekta kynnt. Farið í flóknari mótun og afsteyputækni. Nemendur nýta sér áfram þrívíddarteikniforrit, þrívíddarprentara, laserskera og flóknari líkanagerð við vinnslu og framsetningu hugmynda sinna. Nemendur vinna markvisst í hugmyndabanka og skrá niður hugmyndir og tilraunir sem sýna vinnuferlið til dæmis með stafrænum aðferðum. Nemendur fá þjálfun í að ræða um og gagnrýna verk sín og annarra nemenda. Nemendur fara með kennara og á eigin vegum á sýningar sem tengjast efni áfangans og skila umfjöllun um þær. Íslenskir og erlendir listamenn sem vinna verk með þeirri tækni sem kennd er í áfanganum verða kynntir.
Þekkingarviðmið
- eiginleikum ólíkra efna til skúlptúrgerðar
- mismunandi aðferðum til skúlptúrgerðar: móta, höggva, byggja, setja saman, búa til innsetningu
- flóknari líkanagerð
- þrívíddarteikniforriti
- starfi íslenskra myndhöggvara
Leikniviðmið
- byggja upp verk í þrívídd
- nota mismunandi efni til skúlptúrgerðar
- móta, höggva, byggja, setja saman og búa til innsetningar
- nýta sér þrívíddarforrit og líkanagerð við hugmyndavinnu
Hæfnisviðmið
- skapa þrívíð myndverk sem unnin eru á sjálfstæðan hátt þar sem fram kemur frumkvæði, innsæi, sérstæði og sjálfstraust
- fjalla um verk sín og hugmyndir á vitsmunalegan og skapandi hátt þar sem rými er gefið fyrir tilfinningar og innsæi
Nánari upplýsingar á námskrá.is