samtímamenning
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: MENN2SO05
Í áfanganum kynnast nemendur listum og menningu samtímans á Íslandi og völdum stöðum erlendis. Nemendur skoða ýmsa þætti listalífsins, s.s. myndlist, hönnun, leiklist, ljósmyndun, dans, kvikmyndir og tónlist, hvern í samhengi við annan og við félagslegt og heimspekilegt umhverfi . Farið verður í vettvangsferðir á listviðburði og nemendur skila rökstuddri, faglegri gagnrýni eða umræður verða um viðburðina. Nemendur þjálfast í að vinna sjálfstætt og með öðrum í að afla sér þekkingar af netinu, úr bókum, fjölmiðlum, sýningarferðum o.fl. og vinna fjölbreytt verkefni og kynningar í máli, myndum og hljóði fyrir samnemendur sína. Í áfanganum verður fram haldið þeirri vinnu með texta sem lagður var grunnur að í áfanganum MENN1so05 en hér verður áhersla lögð á texta þar sem fjallað er um menningu samtímans.
Þekkingarviðmið
- menningu samtímans á Íslandi og í öðrum löndum
- orðræðu sem notuð er þegar fjallað er um menningu og listir í samtímanum
- fjölbreytileika samtímamenningar
- samhengi listar, samfélagsgerðar og tíðaranda
Leikniviðmið
- vinna rannsóknarvinnu og koma henni frá sér á fjölbreyttan hátt
- beita rökstuddri gagnrýni við umfjöllun um ólíka listviðburði
- lesa, skilja og greina texta annarra um menningu og listir
- skrifa texta þar sem fjallað er um listviðburði á vitsmunalegan og gagnrýninn hátt og þar sem rými er gefið fyrir tilfinningar og innsæi
- taka þátt í samræðum um menningu og listir í samtímanum
Hæfnisviðmið
- skrifa texta um ólíka þætti samtímamenningar
- hafa áhrif á og taka þátt í umræðu um menningu samtímans
- fjalla um og þróa eigin sköpun
- njóta og skilja listir og menningu
Nánari upplýsingar á námskrá.is