samhengi og orðræða
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Nemendur vinna nokkur hóp og einstaklingsverkefni þar sem þeir kanna afmörkuð tímabil í mannkynssögunni erlendis og á Íslandi, hvernig ólíkar listgreinar tengjast í gegnum stíl og tíðaranda og hvernig aðstæður í samfélaginu, stjórnmál og félagslegt og fræðilegt umhverfi hefur áhrif á alla listsköpun. Lögð verður áhersla á vinnu með texta. Nemendur tileinka sér og nýta almennan orða- og hugtakaforða sem notaður er við umfjöllun um menningu og listir. Grunnhugtök verða útskýrð og sett í samhengi. Teknir verða fyrir textar þar sem fjallað er um menningartengd atriði og þeir krufnir með tilliti til orðaforða og orðalags, hugmynda og hugtaka. Nemendur læra mismunandi aðferðir við að kynna verkefni á skapandi s.s. með glærusýningum, myndböndum og hlaðvörpum. Samræður og hópavinna skipa stóran sess í áfanganum og nemendur fá þjálfun í að skrifa texta um menningu og listir þar sem orðaforðinn er nýttur. Nemendur fara á listviðburði bæði með kennara og á eigin vegum og skila skriflegri umfjöllun um þá viðburði.
Þekkingarviðmið
- eðli ljóss og lita og heyrnar og tóna og hvernig þessir þættir móta skynjun okkar og upplifun á listviðburðum
- samhengi listar, samfélagsgerðar og tíðaranda á völdum tímabilum í mannkynssögunni
- orðræðu sem notuð er þegar fjallað er um menningu og listir
- hvernig á að skipuleggja vinnu í frjálsu hópastarfi
- hvernig á að skrifa faglega umfjöllun um listviðburði
Leikniviðmið
- vinna rannsóknarvinnu og koma henni frá sér á fjölbreyttan hátt t.d. með fyrirlestrum, glærusýningum, rituðum texta, myndböndum eða öðrum skapandi aðferðum
- skrifa texta þar sem beitt er orðfæri menningarumræðu
- beita rökstuddri gagnrýni við umfjöllun um ólíka listviðburði
- lesa, skilja og greina texta annarra um menningu og listir
- skrifa texta þar sem fjallað er um menningu á vitsmunalegan og gagnrýninn hátt og þar sem rými er gefið fyrir tilfinningar og innsæi
Hæfnisviðmið
- lesa og skilja texta þar sem menning er til umfjöllunar
- skrifa texta um ólíka þætti menningar
- hafa áhrif á og taka þátt í umræðu um menningu
- fjalla um og þróa eigin sköpun
- njóta og skilja listir og menningu
Nánari upplýsingar á námskrá.is