nýklassík til abstrakt expressjónisma
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Í áfanganum verður listasaga Vesturlanda frá nýklassík til abstrakt expressjónisma kennd. Fjallað verður meðal annars um nýklassík, rómantík, raunsæisstefnuna, impressjónisma, expressjónisma, abstrakt list, dada, súrrealisma og abstrakt expressjónisma. Nemendur fá þjálfun í að fjalla um listasöguna og sögulega þróun með því að skrifa rannsóknarritgerð þar sem einn listamaður og sú stefna sem hann vann í er tekinn til umfjöllunar og niðurstöðurnar kynntar fyrir samnemendum.
Þekkingarviðmið
- helstu stíleinkennum í myndlist frá nýklassík til abstrakt expressjónisma
- nöfnum og verkum helstu myndlistarmanna á tímabilinu
- hvernig myndlist einstakra myndlistarmanna breytist með tíma og breyttum viðhorfum
- hvernig samfélagsgerð og tíðarandi hefur áhrif á hugmyndir, viðfangsefni og útfærslu verka myndlistarmanna
Leikniviðmið
- miðla sögulegri þekkingu
- vinna með ritaðar heimildir á skipulagðan hátt
- nota APA kerfið
- greina sögulega þróun myndlistar og samhengi hennar
Hæfnisviðmið
- bera saman, finna tengsl, einfalda og draga ályktanir af listasögunni og þróun hennar
- vinna sjáfstætt og setja fram sögulegar greiningar
- vinna skipulega með sögulegan texta og setja fram á rökrænan hátt
- meta gæði heimilda
- skrifa rannsóknarritgerð
Nánari upplýsingar á námskrá.is