ENSK2KK05 - Kvikmyndir og kynningar

Kvikmyndir og kynning

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: ENSKMS05
Nemendur öðlist skilning á menningu enskumælandi svæða í gegnum kvikmyndir, sígildar og nýjar, og þjálfist í ritun af ýmsu tagi. Áhersla er lögð á að auka orðaforða. Nemendur þjálfast í að skilja ensku sem notuð er á ólíkum málsvæðum.

Þekkingarviðmið

  • ólíkum viðhorfum og gildum í enskumælandi löndum og hvernig þau móta menninguna
  • sérhæfðum orðaforða sem tengist bókmenntum og kvikmyndum
  • uppsetningu og skipulagi ritaðs máls, s.s. gagnrýni, handritum, samanburðarskrifum o.fl.

Leikniviðmið

  • skilja mál sem er talað með mismunandi hreim og við mismunandi aðstæður
  • tengja samfélag og tíma
  • skilja texta kvikmynda og myndmál
  • skilja tengsl ritaðs máls og talaðs
  • rökræða, skiptast á skoðunum um kvikmyndir, taka þátt í pallborðsumræðum
  • lesa texta í tengslum við sögu kvikmynda, bakgrunn (sögulegan/menningarlegan), tækni við kvikmyndagerð, lýsingu, tónlist
  • skrifa kvikmyndarýni, handrit, samanburð á bók og mynd eða eldri og nýrri útgáfu mynda

Hæfnisviðmið

  • tjá sig skýrt og hnökralaust
  • geta skrifað læsilegan og lipran texta, rakið ólík sjónarmið með og á móti, skrifað texta frá eigin brjósti þar sem hugmyndaflug fær að njóta sín
  • geta lesið á milli lína
Nánari upplýsingar á námskrá.is