Söngur og túlkun
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: LEIK2BS05
Í áfanganum eru kenndar aðferðir í söngtúlkun til flutnings á leiksviði. Nemendur læra að vinna söngtexta til flutnings og farið er í grunnþætti raddbeitingar og söngtúlkunar. Unnið er með ólík sönglög frá ýmsum tímum. Einnig fá nemendur kennslu í raddheilbrigði. Nemendur vinna hver með eitt lag, ásamt hóplögum, sem öll verða metin í lok annar.
Þekkingarviðmið
- hvernig unnið er með söngröddina og undirstöður í söngtækni
- hvernig vinna skal með söngtexta til túlkunar á leiksviði
- þeim ólíku leiðum sem hægt er að fara við að túlka og tjá söngtexta á sviði
- samvinnu út frá leik, söng og dansi
- hvernig lag samtvinnast söguþræði
Leikniviðmið
- hita upp rödd og líkama til að undirbúa söngflutning
- greina lag til túlkunar og flutnings
- beita röddinni á áhrifaríkan, dýnamískan og blæbrigðaríkan hátt bæði í söng og leik
- nýta söngtækni í flutningi sönglags á leiksviði
- tengja saman rödd og tónheyrn
- skrá hjá sér hugleiðingar um vinnu með rödd
- nýta sér tækniæfingar til að vinna með söng
Hæfnisviðmið
- flytja lag á áhrifaríkan og blæbrigðaríkan hátt á leiksviði
- nýta þá raddtækni sem hann hafa lært til flutnings á sönglagi/texta
- geta tengt saman leikinn texta og sönglag
- segja frá og skrifa um ólíkar leiðir til að túlka og tjá texta
- geta unnið sönglög bæði sem einstaklingur og í hóp
Nánari upplýsingar á námskrá.is