leikstjórinn
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: LEIK2SV05 LEIK3SK05
Lögð er áhersla á að kynna nemendur fyrir leiklist út frá ólíkum sjónarhornum. Sérstök áhersla er lögð á sjónarhorn leikstjórans. Nemendur fá innsýn í hugmyndir og aðferðir frægra kennismiða í vestrænni leiklist. Nemendur nýta þessar hugmyndir og aðferðir, sem og aðra tækni sem þeir hafa lært á skólagöngu sinni, til að leikstýra samnemendum sínum í stuttum senum. Einnig kynnast nemendur því fjölbreytta starfi sem fram fer innan veggja leikhússins.
Þekkingarviðmið
- hlutverki leikstjórans í uppsetningu sviðslistaverks
- samspili mismunandi sjónarhorna þeirra listamanna sem koma að uppsetningunni
- hvernig hægt er að leikstýra handriti
- hvernig hægt sé að sameina ólík listform í eigin sviðslistaverki
- því víðtæka starfi sem fram fer við uppsetningu sviðslistaverka
Leikniviðmið
- vinna stutta leiksenu bæði sem leikstjóri og leikari út frá ólíkum kenningum og aðferðafræði
- nýta ólík listform við uppsetningu á sviðslistaverki
- beita tungumáli leikhússins
- taka virkan þátt í leikhúsumræðu
- geta rökstutt og miðlað listrænum ákvörðunum sínum í ræðu og riti
- greina senur og leiktexta til að geta tekið sjálfstæðar og listrænar ákvarðanir sem þjóna verkinu
Hæfnisviðmið
- skilgreina uppsetningu leikverks út frá sjónarhorni leikstjórans
- geta tekið virkan þátt í hugmyndavinnu við uppsetningu sviðslistaverks sjálfstætt eða í hópi
- gera sér grein fyrir þeim möguleikum sem leikhúsformið býður upp á
- koma sinni persónulegu rödd að í sjálfstæðu sviðslistaverki
- koma hugmyndum sínum á framfæri við samstarfsaðila á skýran og skilmerkilegan hátt
- setja eigin hugmyndir og vinnu í samhengi við þær kenningar og aðferðir sem þau hafa þegar tileinkað sér í námi sínu
- taka þátt í samræðum á faglegum grundvelli um þau ólíku listform sem liggja að baki sviðslistaverki
Nánari upplýsingar á námskrá.is