baksviðs
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: LEIK2SL05
Í áfanganum kynnast nemendur hugtakinu samfélagslistir og vinna verkefni tend sviðslistum út í samfélaginu. Einnig fá þeir innýn inn í ólíkar leiðir og listsköpun starfandi sviðslistafólks í landinu.
Vinnan gengur út á valdeflingu og að opna augu nemenda fyrir ólíkum leiðum í sviðsetningu. Mikil áhersla er lögð á að tengja nám nemenda út í samfélagið, bæði þeirra nærsamfélag og út í fagsamfélag sviðslistafólks. Áfanginn er tvískiptur. Í öðrum hlutanum vinna nemendur sjálfstætt að uppsetningum og verkum með ólíkum samfélaghópum í nærumhverfinu s.s. eldri borgurum, leikskólabörnum og/eða nemendum innan FG. Í hinum hluta áfangans læra nemendur trúðatækni og einnig fá nemendur kynningu á ólíkum fagstéttum sem starfa innan leikhússins og því víðtæka starfi sem þar fer fram.Listamenn úr ólíkum áttum gefa nemendum innsýn inn í vinnu sína og hugmyndir um hvernig hægt er að útfæra og sviðsetja verk á ólíkan hátt inn í samfélaginu.
Þekkingarviðmið
- samfélagslistum
- tækni trúðsins
- hugtakinu valdefling
- fræðilegum og sögulegum þætti samfélagsleikhúss
- möguleikum í listsköpun með ólíkum samfélagshópum
- starfi fagstétta í sviðslistum eins og leikstjóra, sviðshöfunda, handritahöfunda, leiksmynda- og búningahönnuða o.s.frv.
- ólíkum leiðum við sviðsetningu út frá mismunandi sjónarhornum
- þeim möguleikum sem leikhúsformið býður upp á
Leikniviðmið
- vinna að listsköpun með ólíkum samfélagshópum
- fjalla um og greina samfélagið í gegnum leiklist
- vinna sviðsvinnu út frá tækni trúðsins
- vinna að sviðsetningu með leikhópi
- beita ólíkum aðferðum og sjónarhornum við sviðsetningu
Hæfnisviðmið
- tengja leiklist inn í samfélagið
- vinna heilstætt verk tengt samfélagslistum
- tjá sig um samfélagslistir og setja í samhengi við eigin vinnu
- segja frá starfandi fagfólki í sviðslistum og listrænni nálgun þeirra
- nýta sér trúðatækni í vinnu sinni
Nánari upplýsingar á námskrá.is