spuni
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: LEIK1GR05
Áfanginn skal veita grunnþekkingu á verkfærum leikarans í spunavinnu. Mikil áhersla er lögð á að að þjálfa öguð, skapandi og jákvæð vinnubrögð. Unnið er með öll þau tækifæri sem felast í spunavinnu.
Þekkingarviðmið
- uppbyggingu spunasena
- persónusköpun í spunasenum
- jákvæðni í samvinnu á sviði
- mikilvægi hlustunnar í spunavinnu
- tækifærunum sem felast í mistökum
- mikilvægi mótleikarans
- mikilvægi þess að treysta hugmyndum sínum
- hver verkfæri leikarans í spunavinnu eru (rödd, líkami, tilfinningar og ímyndunarafl)
- mismunandi leikstílum
- ólíkum spunaformum
Leikniviðmið
- vinna spunasenur á sviði í samvinnu við aðra
- skapa skýrar persónur á sviði
- taka við uppbyggilegri gagnrýni
- vinna í virkri hlustun
- vinna hratt og örugglega og véfengja ekki ákvarðanir sínar
- nýta mistök sín sem tækifæri
- tjá sig um uppbyggingu eigin ariða og atriða samnemenda sinna
- beita verkfærum leikarans í spuna
- nýta sér mismunandi leikstíla
- beita sjálfstæðum vinnubrögðum og sjálfsaga í leiklistarvinnu
Hæfnisviðmið
- sýna spunasenu þar sem grunnreglum spunans er fylgt
- geta nýtt spuna til að búa til heilsteyptar persónur
- greina senur og persónur út frá grunnreglum spunans
- gera sér grein fyrir og nýta frumkvæði sitt
- setja sig í spor persóna og nýta verkfæri leikarans til túlkunnar á sviði
- beita virkri hlustun og orkustigi í samvinnu og sviðsvinnu
- beita sjálfstæðum vinnubrögðum og frumkvæði í spuna
- geta unnið án ritskoðunar á sjálfan sig, aðra og framvindu meðan á gólfvinnu stendur
- sýna jákvætt og uppbyggilegt viðhorf í sköpunarvinnu gagnvart sjálfum sér og öðrum
Nánari upplýsingar á námskrá.is