EÐLI2GÁ05 - Grunnáfangi

grunnáfangi

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: STÆR2FJ05
Í þessum fyrsta áfanga í eðlisfræði er byrjað á því að láta nemendur vinna með hugtök og þekkingu úr grunnatriðum aflfræði. Samtímis því eru nemendur þjálfaðir í þeim vinnubrögðum sem notuð eru í þessari grein. Nemendur vinna bæði sjálfstætt og saman í hópum og lögð er áhersla á sjálfstæði og ábyrgð nemandans á eigin námsframvindu.

Þekkingarviðmið

  • því hvað felst í vísindalegri aðferð.
  • SI-kerfinu og SI-einingum stærða sem unnið er með.
  • einföldum kraftmyndum, sérstaklega í skáplani og láréttu plani.
  • hreyfilögmálum Newtons.
  • vélrænni orku og heildarorku, ásamt varðveislu þeirra.
  • helstu hugtökum sem notuð eru í hreyfifræði og aflfræði
  • lögmálum Pascals og Arkimedesar

Leikniviðmið

  • fara með tölur og vigra í eðlisfræði og í vísindalegum vinnubrögðum.
  • beita lögmálum og jöfnum við að leysa verkefni af ýmsu tagi.
  • leiða út með rökrænum hætti jöfnu fyrir samband stærða frá gefnum forsendum.
  • framkvæma verklegar æfingar og vinna úr mæliniðurstöðum þeirra.

Hæfnisviðmið

  • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • nota námsefni og gögn á markvissan hátt.
  • yfirfæra þekkingu úr öðrum greinum til að auðvelda námið.
  • meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar.
  • tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar.
Nánari upplýsingar á námskrá.is