bókfærsla, inngangur
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Fjallað er um bókhaldshringrásina og helstu reglur tvíhliða bókhalds. Fjallað er um grundvallarhugtökin eignir og skuldir, gjöld og tekjur. Lögð er áhersla á að nemendur verði færir um að annast almennar færslur í dagbók, hafi skilning á uppgjöri og geti sett fram einfaldan efnahags- og rekstrareikning. Nemendum er veitt innsýn í notkun flestra reikninga sem telja má til grunnreikninga í fjárhagsbókhaldi. Nemendum er gerð grein fyrir tilgangi bókhalds og kynnt helstu lög um bókhald og virðisaukaskatt.
Þekkingarviðmið
- grunnhugtökum bókfærslu:
- debet og kredit
- eignum og skuldum
- gjöldum og tekjum
- virðisaukaskatti og tilgangi hans
- helstu lögum um bókhald
Leikniviðmið
- færa einfaldar dagbókarfærslur
- stilla upp prófjöfnuði
- færa niðurstöður dagbókar í aðalbók
- setja upp efnahags- og rekstrarreikning
- reikna út hagnað og tap
- gera upp viðskipti fyrir ákveðið tímabil
- gera upp virðisaukaskatt
Hæfnisviðmið
- geta sett upp einfalt bókhald
- geta gert einfaldar færslur í fjárhagsbókhaldi
Nánari upplýsingar á námskrá.is