ritun og tal
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: FRAN1FF05
Í þessum áfanga er að mestu lokið við innlögn helstu þátta fransks málkerfis og nemendur dýpka því verulega þekkingu sína á því. Nemendur auka færni sína í lesskilningi, hlustun, tali og ritun. Orðaforðaþekking er dýpkuð í takt við kröfur um að nemendur geti rætt og ritað um sérhæfðari málefni og er unnið bæði með rauntexta og skáldverk. Munnleg og skrifleg tjáning skipar stærri sess en í fyrri áföngum og lögð er aukin áhersla á sjálfstæð vinnubrögð nemenda.
Þekkingarviðmið
- almennum og sérhæfðari orðaforða í samræmi við hæfni- og leikniviðmið áfangans
- öllum helstu reglum um framburð, áherslur og hljómfall
- öllum helstu grunnatriðum málkerfisins
- afmörkuðum þáttum í menningu og þjóðfélagi frönskumælandi svæða
Leikniviðmið
- skilja talað mál um almennt efni daglegs lífs og sérhæfðari kunnugleg efni þegar talað er nokkuð skýrt
- skilja ýmiss konar lengri samfellda texta í tengslum við þemu áfangans
- lesa bókmenntatexta af hæfilegu þyngdarstigi og geta tjáð sig í ræðu og riti um hann á sjálfstæðari hátt en áður
- taka þátt í samræðum um ákveðin undirbúin efni í tengslum við þemu áfangans
- skrifa lengri samfellda texta um kunnugleg efni tengd þemum áfangans
- halda kynningu/fyrirlestur á undirbúnu efni í tengslum við þema áfangans
- tjá sig á skýran hátt og beita öllum helstu reglum um málnotkun án teljandi hnökra
- vinna á sjálfstæðan hátt m.a. með ýmis hjálpargögn
- nota sjálfstæð og viðeigandi vinnubrögð í tungumálanámi
Hæfnisviðmið
- greina aðalatriði úr fjöl- og myndmiðlum ef efnið er fremur kunnuglegt
- taka þátt í samræðum
- tjá sig um efni áfangans á sjálfstæðari og fjölbreyttari hátt en áður bæði skriflega og í formi munnlegrar kynningar
- afla sér upplýsinga í textum um almenn og sérhæfðari efni
- greina aðalatriðin í stuttum og lengri textum af mismunandi toga
Nánari upplýsingar á námskrá.is