FRAN2KV05 - Kvikmyndir

kvikmyndir

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: FRAN2RI05
Áfram er unnið með færniþættina fjóra. Orðaforðaþekking er dýpkuð verulega til að takast á við sérhæfðari efni. Æ meiri áhersla er lögð á að nemendur tjái sig skriflega og munnlega og öðlist sjálfstæði í vinnubrögðum fyrir slík verkefni. Unnið er með þematengt efni og skipa kvikmyndir frönskumælandi landa þar stærstan sess. Kvikmyndir eru útgangspunktur fyrir ýmiss konar verkefni og er þeim einnig ætlað að auka læsi nemenda á menningu frönskumælandi svæða. Lesskilningur er dýpkaður með lestri á skáldverki.

Þekkingarviðmið

  • fjölþættum orðaforða í samræmi við hæfni- og leikniviðmið áfangans
  • helstu grunnatriðum málkerfisins
  • afmörkuðum þáttum í menningu og þjóðfélagi frönskumælandi svæða; siðum þeirra og venjum

Leikniviðmið

  • skilja talað mál um efni af fjölbreyttari toga en áður
  • skilja ýmiss konar lengri samfellda texta í tengslum við þemu áfangans
  • taka þátt í samræðum um ákveðin undirbúin og stundum óundirbúin efni í tengslum við þemu áfangans
  • skrifa lengri samfellda texta tengda efni áfangans
  • halda munnlega kynningu/fyrirlestur á undirbúnu efni
  • tjá sig á skýran hátt og beita tungumálinu á viðeigandi hátt án teljandi hnökra við ýmiss konar aðstæður
  • vinna á sjálfstæðan hátt m.a. með ýmis hjálpargögn

Hæfnisviðmið

  • greina megininntak talað máls/frásagna af ýmsum toga ef efnið er fremur kunnuglegt
  • taka þátt í samræðum við fjölbreyttar aðstæður á sjálfstæðan hátt, stundum án undirbúnings
  • tjá sig um efni áfangans á sjálfstæðan hátt bæði skriflega og munnlega
  • tileinka sér innihald í lengri og sérhæfðari textum en áður
Nánari upplýsingar á námskrá.is