grunnáfangi
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Megináhersla er lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði franskrar tungu og fái innsýn í menningu frönskumælandi landa. Nemendur læra m.a. að kynna sig og aðra, tala um áhugamál og frítíma, líðan, fjölskyldu sína og álit. Nemendur eru þjálfaðir í færniþáttunum fjórum; tali, hlustun, ritun og lestri. Mikil áhersla er lögð á að nemendur nái tökum á helstu framburðarreglum í þessum fyrsta áfanga.
Þekkingarviðmið
- almennum orðaforða í samræmi við hæfni- og leikniviðmið áfangans
- helstu reglum um framburð og hljómfall
- grunnatriðum málkerfisins
- útbreiðslu frönskunnar ásamt nokkrum þáttum í menningu og þjóðfélagi frönskumælandi svæða
Leikniviðmið
- skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
- fylgja einföldum fyrirmælum í kennslustundum á frönsku
- skilja mjög einfalda texta sem fjalla um kunnugleg viðfangsefni og innihalda algengan orðaforða sem tengist nemandanum, umhverfi hans og áhugamálum
- taka þátt í afar einföldum samræðum um efni sem hann þekkir og tengist honum sjálfum og beita kurteisis- og málvenjum við hæfi
- segja á einfaldan hátt frá sjálfum sér, nánasta umhverfi og áhugamálum
- skrifa einfalda texta í takt við viðfangsefni áfangans
- beita helstu reglum um málnotkun á sem réttastan hátt í ræðu og riti
- beita viðeigandi námstækni í tungumálanámi og nýta sér hjálpargögn
- nota sjálfstæð og viðeigandi vinnubrögð í tungumálanámi
Hæfnisviðmið
- greina einfaldar upplýsingar í mæltu máli
- eiga einföld samskipti á frönsku við ákveðnar aðstæður
- segja frá persónulegum högum í ræðu og riti á einfaldan hátt
- vinna úr einföldum texta á mismunandi hátt eftir efni og eðli textans og tilganginum með lestrinum
Nánari upplýsingar á námskrá.is