frásagnir og ferðalög
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: FRAN1FR05
Nemendur bæti markvisst við grunnþekkingu sína í tungumálinu og geti beitt því við æ fjölbreyttari aðstæður. Frásagnir í nútíð og þátíðunum tveimur eru æfðar munnlega og skriflega. Nemendur öðlast m.a. færni í að tala um nám og atvinnu, gefa ráð og leiðbeiningar, lýsa áfangastöðum og ferðalögum. Nemendur auka lesskilning sinn m.a. með því að lesa einfalda skáldsögu eða smásögur. Nemendur fá aukna innsýn í menningarheim frönskumælandi svæða og vinna menningartengt heimildaverkefni.
Þekkingarviðmið
- almennum orðaforða í samræmi við hæfni- og leikniviðmið áfangans
- öllum helstu reglum um framburð og hljómfall
- fleiri grunnatriðum málkerfisins
- menningu og þjóðfélagi frönskumælandi svæða á markvissari hátt en áður
Leikniviðmið
- skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er fremur hægt og skýrt
- fylgja fyrirmælum á frönsku í kennslustundum
- skilja ýmiss konar einfalda texta sem fjalla um viðfangsefni áfangans og festa í sessi og auka orðaforða
- fylgja söguþræði í einföldum eða einfölduðum bókmenntatexta
- taka þátt í frekar einföldum samræðum um efni sem hann þekkir og hefur áhuga á og geta beitt kurteisis- og málvenjum við hæfi
- skrifa samfellda texta um ýmis kunnugleg efni
- halda stutta kynningu á undirbúnu efni
- beita helstu reglum um málnotkun
- beita viðeigandi námstækni í tungumálanáminu og nýta sér hjálpargögn á sjálfstæðan hátt
- nota sjálfstæð og viðeigandi vinnubrögð í tungumálanámi
Hæfnisviðmið
- ná aðalatriðum í einföldum frásögnum úr fjöl- og myndmiðlum ef efnið er kunnuglegt
- geta tekið þátt í samræðum í ákveðnum aðstæðum á sjálfstæðari hátt en áður
- segja frá eigin þekkingu, reynslu, áhugamálum, áformum, skoðunum og líðan í ræðu og riti
- afla sér upplýsinga upp á eigin spýtur úr textum um almennt efni
- greina aðalatriðin í stuttum tímarits- eða blaðagreinum og draga ályktanir
- lesa skáldskap af hæfilegu þyngdarstigi og tjá sig um efni hans í ræðu og riti
Nánari upplýsingar á námskrá.is