SPÆN1FF05 - Fortíð, framtíð og ferðalög

fortíð, framtíð og ferðalög

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: SPÆN1FR05
Nemendur æfast í notkun mismunandi tíða; að segja frá í nútíð, þátíð og framtíð ásamt því að tjá framtíðarplön. Þeir dýpka lesskilning sinn m.a. með því að lesa einfaldaða skáldsögu og æfast í að tjá sig bæði skriflega og munnlega um persónulega hagi, húsnæði, ferðalög og fleira. Nemendur fá aukna innsýn í menningarheim spænskumælandi landa, og vinna menningartengt heimildaverkefni.

Þekkingarviðmið

  • almennum orðaforða í samræmi við hæfni- og leikniviðmið áfangans
  • grunnatriðum málkerfisins
  • útbreiðslu spænskunnar ásamt ólíkum venjum, staðháttum og menningu spænskumælandi landa

Leikniviðmið

  • skilja frásagnir og umræður um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
  • fylgja fyrirmælum á spænsku í kennslustundum
  • lesa og skilja ýmiss konar einfalda texta á eigin áhugasviði eða texta um kunnugleg efni og beita til þess viðeigandi aðferðum
  • taka þátt í frekar einföldum samræðum um efni sem hann þekkir og hefur áhuga á og geta beitt kurteisis- og málvenjum við hæfi
  • skrifa samfellda texta um ýmis kunnugleg efni, svo sem mannlýsingar, umhverfislýsingar, póstkort, frásagnir o.þ.h.
  • beita helstu reglum um málnotkun á sem réttastan hátt í ræðu og riti
  • beita viðeigandi námstækni í tungumálanáminu og nýta sér hjálpargögn
  • nota sjálfstæð og viðeigandi vinnubrögð í tungumálanámi

Hæfnisviðmið

  • njóta einfaldra frásagna og ná aðalatriðum úr fjöl- og myndmiðlum ef efnið er kunnuglegt
  • takast á við ýmsar aðstæður í almennum samræðum á sjálfstæðari hátt en áður
  • segja frá eigin þekkingu, reynslu, áhugamálum, skoðunum og líðan í ræðu og riti
  • afla sér upplýsinga í textum um almenn efni
  • greina aðalatriðin í stuttum tímarits- eða blaðagreinum og draga ályktanir
  • tjá skoðun sína á lesnum texta
Nánari upplýsingar á námskrá.is