DANS3KH05 - Kaupmannahöfn

Kaupmannahöfn

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: DANS2SO03
Borgin Kaupmannahöfn er aðalviðfangsefni áfangans. Fjallað er um menningu borgarinnar og sögu íslenskra námsmanna í Danmörku fyrr og nú. Dagleg samskipti á dönsku eru æfð og nemendur afla sér upplýsinga á dönsku og íslensku í gegnum ýmsa netmiðla og lesefni sem tengjast efni áfangans. Nemendur undirbúa fjögurra daga ferð til Kaupmannahafnar. Þangað er farið og vinna nemendur þar verkefni í tengslum við ferðina sem og eftir heimkomu. Þekktustu staðir borgarinnar og söguslóðir Íslendinga eru heimsóttir.

Þekkingarviðmið

  • mannlífi og menningu í Kaupmannahöfn.
  • viðhorfum, gildum og almennum kurteisisvenjum í landinu.
  • samspili menntunar milli Íslands og Kaupmannahafnar og tengingu námsmanna fyrr og nú.
  • helstu Íslendingaslóðum í Kaupmannahöfn fyrr og nú.
  • orðaforða í samræmi við hæfni og leiknimarkmið áfangans

Leikniviðmið

  • afla sér hagnýtra upplýsinga og taka þátt í samræðum.
  • skilja talað mál í algengum raunverulegum aðstæðum.
  • beita tungumálinu skýrt og skiljanlega.
  • nota upplýsingatækni og önnur hjálpargögn við upplýsingaöflun, undirbúningsvinnu og samantekt.
  • vinna úr og samþætta upplýsingar samkvæmt þeim venjum sem gilda um heimildavinnu og miðla þeim til annarra á áhugaverðan hátt.
  • beita tungumálinu skýrt og skiljanlega út frá aðstæðum

Hæfnisviðmið

  • taka þátt í almennum samræðum um fjölbreytt málefni.
  • geta fært rök fyrir máli sínu og brugðist við óvæntum spurningum.
  • geta tjáð sig skýrt og skiljanlega með rökstuðningi.
  • fjalla um sérhæfð efni með sérhæfðum orðaforða þar sem við á.
  • vera fær um að fjalla almennt um menningu og mannlíf Danmerkur.
Nánari upplýsingar á námskrá.is