sérhæfður orðaforði
Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: DANS2LO05
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist dýpri og sérhæfðari orðaforða en áður og geti nýtt sér hann í öllum færniþáttum. Þeir eiga að geta tjáð sig lipurt bæði munnlega og skriflega. Nemendur fá þjálfun í að vinna sjálfstætt að verkefnum og geta lagt mat á eigin vinnu. Nemendum er áfram veitt innsýn í danska menningu og siði.
Þekkingarviðmið
- danska menningarsvæðinu og hvernig danska nýtist á norræna menningarsvæðinu almennt
- ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta danska menningu
- orðaforða til undirbúnings á háskólastigi
- helstu hefðum um uppsetningu og skipulag ritaðs máls
Leikniviðmið
- skilja eðlilegt talað mál við mismunandi aðstæður
- lesa fjölbreyttar gerðir texta
- tjá sig munnlega skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér
- rita margs konar texta, og fylgja helstu rithefðum og reglum um málbeitingu
- beita meginreglum danskrar málfræði og setningarfræði
Hæfnisviðmið
- skilja daglegt mál svo sem samræður og fjölmiðlaefni, inntak erinda og annað tiltölulega flókið efni sem hann hefur kynnt sér
- tileinka sér innihald ritaðs texta og nýta það á mismunandi hátt
- átta sig á dýpri merkingu texta
- tjá sig hiklaust og taka þátt í samræðum við ólíka viðmælendur
- skiptast á skoðunum og setja fram hugmyndir sínar af talsverðu öryggi, koma þeim kunnáttusamlega til annarra og bregðast við viðmælendum
- tjá sig skýrt og lipurlega fyrir áheyrendum um sérvalið efni sem nemandinn hefur kynnt sér
- skrifa læsilega texta um sérvalið efni frá eigin brjósti þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín
- skrifa margs konar texta og fylgja þeim rithefðum sem við eiga hverju sinni
- lesa texta um ákveðin viðhorf og skoðanir og geta brugðist við þeim
Nánari upplýsingar á námskrá.is