kvikmyndaáfangi
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: DANS2SO03
Lögð er áhersla á danskar kvikmyndir og sjónvarpsþætti sem og tiltekna leikara og leikstjóra. Kynnt er dönsk kvikmyndasaga í máli og myndum. Fjallað er um leikara og leikstjóra sem skarað hafa fram úr í danskri kvikmyndagerð og einnig um þær kvikmyndir sem taldar eru tímamótaverk og eru samnefnari fyrir þá strauma og stefnur sem ríkjandi hafa verið á ákveðnum tímabilum. Þá eru sýndar valdar kvikmyndir í kjölfar kynninga nemenda á tilteknum leikara og/eða leikurum, efni og þeirri samtímasögu sem endurspeglast í verkunum.
Þekkingarviðmið
- sögu kvikmyndagerðar í Danmörku.
- helstu stefnum og straumum sem ríkjandi hafa verið í danskri kvikmyndagerð.
- þeim kvikmyndum sem markað hafa tímamót í danskri kvikmyndagerð.
- verkum danskra kvikmyndaleikstjóra sem skarað hafa fram úr og/eða unnið til alþjóðlegra verðlauna.
- dönskum leikurum sem hafa hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir leik sinn í kvikmyndum á hvíta tjaldinu.
- danskri menningu eins og hún birtist í kvikmyndaflórunni.
Leikniviðmið
- skilja danskar kvikmyndir, tungumálið, leikara og umhverfi.
- greina kvikmyndir í samræmi við þau hugtök og verkefni sem unnið er út frá í áfanganum.
- þekkja þekkta/fræga danska leikara í dönskum kvikmyndum sem og öðrum kvikmyndum.
- fjalla munnlega um þekkt efni, s.s. danska leikara og kvikmyndir, án þess að styðjast við ritaðan texta.
- tengja valdar kvikmyndir við danska menningu og samhengið við danska kvikmyndasögu.
- flytja mál sitt með skipulögðum hætti á skilmerkilegri dönsku og útskýra og rökstyðja verkefni á sannfærandi hátt.
Hæfnisviðmið
- nýta vel þá tungumálakunnáttu sem er til staðar og tjá sig munnlega af nokkru öryggi.
- skilja betur en áður mælt mál í dönskum kvikmyndum og þáttum og einnig í Danmörku
- eiga auðveldara með að laga sig að og skilja danskt samfélag sem og önnur norræn samfélög.
- skilja og geta beytt orðaforða tengdum kvikmyndum
Nánari upplýsingar á námskrá.is