DANS1GR05 - Grunnáfangi

grunnáfangi

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Eingöngu fyrir nemendur sem fengu D á grunnskólaprófi.
Í áfanganum er farið í grunnatriði danskrar málfræði, unnið með létta texta til að auka lesskiling og orðaforða. Stefnt er að því að gera nemendur færa um að skilja tiltölulega einfalda, almenna texta. Hlustun er þjálfuð. Unnið er með grunnatriði í danskri málfræði. Dönsk menning er kynnt og áhugi á henni vakinn, og unnið að því að gera viðhorf nemenda til tungumálsins jákvæða.

Þekkingarviðmið

  • danska menningarsvæðinu
  • orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans
  • grundvallarþáttum málkerfisins

Leikniviðmið

  • skilja talað mál um kunnugleg einföld efni þegar talað er skýrt og áheyrilega
  • geta tjáð sig um einfalt efni sem hann þekkir
  • skrifa einfaldan texta um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á
  • geta skilið og lesið talað mál um kunnugleg einföld efni þegar talað er skýrt og áheyrilega
  • nýta sér upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi

Hæfnisviðmið

  • fylgjast með einföldum frásögnum um almenn efni
  • lesa danskan texta af hæfilegu þyngdarstigi
  • leysa úr viðfangsefnum af þyngd sem hæfir áfanganum
  • þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
  • meta eigið vinnuframlag
Nánari upplýsingar á námskrá.is