lestur og verkefnavinna
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: ÞÝSK2BM05
Markviss þjálfun í lestri, ritun, hlustun, munnlegri tjáningu og orðaforðauppbyggingu. Upprifjun á helstu atriðum þýskrar málfræði í takt við þarfir nemendahópsins. Nemendur fræðast um menningu og staðhætti þýskumælandi landa. Nemendur kynnast þýskri kvikmyndagerð.
Þekkingarviðmið
- fjölþættum orðaforða í samræmi við hæfni- og leikniviðmið áfangans
- flóknari þáttum málkerfisins
- mismunandi textagerðum
- menningu og samfélagi þýskumælandi landa í gegnum kvikmyndir og ritaðan texta
Leikniviðmið
- skilja skýrt talað mál og megininntak í myndmiðlum
- skrifa vandað mál sem hæfir aðstæðum hverju sinni
- tjá eigin skoðanir og fyrirætlanir
- nota upplýsingatækni og hjálpargögn
- nota sjálfstæð og viðeigandi vinnubrögð í tungumálanámi
- lesa ólíkar textagerðir m.a. í smásögum og ljóðum
Hæfnisviðmið
- fjalla munnlega og skriflega um efni sem hann hefur kynnt sér
- tjá sig á þýsku við ýmsar aðstæður í almennum samskiptum
- meta innihald kvikmyndar og vinna verkefni um efni hennar
- tileinka sér mismunandi texta
- skrifa mismunandi tegundir texta
- meta eigið vinnuframlag og annarra
Nánari upplýsingar á námskrá.is