bókmenntir og menning
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: ÞÝSK1FF05
Í þessum áfanga er að mestu lokið við innlögn grunnþátta málkerfisins, auk þess sem nemendur þjálfast í færniþáttunum fjórum lestri, ritun, hlustun og tali. Nemendur lesa flóknari texta en áður svo sem skáldsögu, ljóð og dægurlagatexta og spreyta sig í auknum mæli á vinnu með rauntexta. Nemendur fræðast um sögu og menningu þýskumælandi landa.
Þekkingarviðmið
- fjölþættum orðaforða í samræmi við hæfni- og leikniviðmið áfangans
- ólíkum textagerðum og hlustunarefni
- helstu grunnatriðum málkerfisins
- mannlífi, menningu og siðum í þýskumælandi löndum
Leikniviðmið
- skilja talað mál um kunnugleg efni og greina aðalatriði í fjöl-og myndmiðlum þegar fjallað er um afmörkuð málefni
- lesa margs konar gerðir texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt
- taka þátt í samræðum um afmörkuð undirbúin efni og um efni sem hann þekkir
- segja frá á skýran hátt og miðla upplýsingum um efni sem hann hefur kynnt sér skrifa lengri samfelldan texta
- nota upplýsingatækni og hjálpargögn við ritun texta og upplýsingaöflun
- nota sjálfstæð og viðeigandi vinnubrögð í tungumálanámi
Hæfnisviðmið
- fjalla bæði munnlega og skriflega um efni sem hann hefur kynnt sér
- tjá eigin skoðanir og persónulega reynslu
- tjá sig um efni ritaðra texta af ýmsum toga og hagnýta þá á mismunandi hátt
- ræða við aðra af nokkru öryggi um efni sem hann þekkir vel
- miðla upplýsingum um undirbúið efni í ræðu og riti
- leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra og beita til þess viðeigandi mál- og samskiptavenjum
- meta eigið vinnuframlag og kunnáttu
Nánari upplýsingar á námskrá.is