berlínaráfangi
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: ÞÝSK1FR05
Berlín er hér til umfjöllunar. Saga borgarinnar er tekin fyrir, sjónum er beint að tímabilinu frá 1945 til dagsins í dag. Tekin eru fyrir dagleg samskipti á þýsku og nemendur vinna með ýmsar heimildir á þýsku og íslensku. Undirbúningur ferðar til Berlínar og verkefni í tengslum við ferðina. Þekktustu staðir borgarinnar eru heimsóttir undir leiðsögn kennara eða fararstjóra. Samþætting tveggja námsgreina að einhverju leyti þar sem rýnt er í sögu lands og þjóðar.
Þekkingarviðmið
- mannlífi og menningu í Berlín
- sögu borgarinnar frá 1945 og hvernig sú saga endurspeglar sögu Evrópu
- grunnorðaforða þýskunnar í samræmi við hæfni- og leikniviðmið áfangans
- ólíkum textagerðum á þýsku, sem endurspeglast í fjölmiðlum og kvikmyndum
Leikniviðmið
- afla sér hagnýtra upplýsinga og taka þátt í samræðum
- skilja talað mál í algengum raunverulegum aðstæðum
- segja frá á skýran hátt og halda stuttar kynningar á undirbúnu efni
- skrifa samantekt um ferðina
- nota upplýsingatækni og hjálpargögn við upplýsingaöflun og verkefnavinnu
Hæfnisviðmið
- fjalla um efni sem hann hefur kynnt sér
- tjá eigin skoðanir og upplifun, munnlega og skriflega
- vera fullgildur félagi í hópi og takast á við mál sem upp geta komið á ferðalagi
- meta eigið vinnuframlag og annarra
Nánari upplýsingar á námskrá.is