framhaldsáfangi
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: ÞÝSK1GR05
Bætt er við orðaforða- og málfræðiþekkingu og áfram unnið með tal, hlustun, ritun og lestur í samræmi við færnimarkmið áfangans. Nemendur æfast munnlega og skriflega í að ákvarða stefnumót, skipuleggja frítíma, gefa upp tímasetningar, tjá skoðun sína, tala um kaup og kjör í verslunum, spyrja og vísa til vegar, gefa upp staðsetningar, gefa og þiggja ráð, boð og bönn og tala um liðna atburði.
Nemendur öðlast aukna innsýn í menningu og siði þýskumælandi svæða.
Þekkingarviðmið
- orðaforða í samræmi við öll helstu hæfni- og leikniviðmið áfangans
- grundvallarþáttum þýska málkerfisins
- grunnþáttum í menningu þýskumælandi landa
Leikniviðmið
- skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
- fylgja fyrirmælum á þýsku og skilja kveðjur og kurteisisávörp
- skilja einfalda texta af ýmsum toga
- taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir og tengist honum sjálfum og geta beitt kurteisis- og málvenjum við hæfi
- beita helstu reglum áfangans um málnotkun í ræðu og riti
- beita viðeigandi námstækni í tungumálanáminu og nýta sér hjálpargögn
- nota sjálfstæð og viðeigandi vinnubrögð í tungumálanámi
Hæfnisviðmið
- greina einfaldar upplýsingar í mæltu máli
- eiga einföld samskipti á þýsku við ákveðnar aðstæður
- tala um sjálfan sig og aðra og ýmsar aðstæður daglegs lífs í ræðu og riti á einfaldan hátt
- vinna úr ýmsum textum á mismunandi hátt eftir efni og eðli textans og tilganginum með lestrinum
- meta eigið vinnuframlag og kunnáttu
Nánari upplýsingar á námskrá.is