grunnáfangi
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Megináhersla er lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins, temji sér góð vinnubrögð og einnig fái þeir innsýn í menningu og staðhætti þýskumælandi landa og kynnist samskiptavenjum og siðum í samanburði við Ísland.
Nemendur læra að kynna sig og aðra, tala um áhugamál, segja frá fjölskyldu sinni og sínu nánasta umhverfi í nútíð í ræðu og riti. Nemendur eru þjálfaðir í færniþáttunum fjórum, tali, hlustun, ritun og lestri.
Þekkingarviðmið
- almennum orðaforða í samræmi við hæfni- og leikniviðmið áfangans
- helstu reglum um framburð, áherslur og hljómfall
- grunnatriðum málkerfisins
- útbreiðslu þýsku og þjóðfélagi þýskumælandi svæða
Leikniviðmið
- skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
- fylgja fyrirmælum á þýsku og skilja kveðjur og kurteisisávörp
- lesa einfalda texta sem innihalda algengan orðaforða
- taka þátt í einföldum samræðum
- segja frá sjálfum sér og fjölskyldu sinni
- skrifa stuttan texta um ýmis atriði
- beita helstu reglum um málnotkun í ræðu og riti
- nota sjálfstæð og viðeigandi vinnubrögð í tungumálanámi
Hæfnisviðmið
- greina einfaldar upplýsingar í mæltu máli
- eiga samskipti á þýsku við ákveðnar aðstæður
- segja frá persónulegum högum í ræðu og riti á einfaldan hátt
- vinna úr einföldum textum á mismunandi hátt eftir efni og eðli textans og tilganginum með lestrinum
- meta eigið vinnuframlag og kunnáttu
Nánari upplýsingar á námskrá.is