STÆR3YÁ05 - Yfirlitsáfangi

yfirlit, áfangi

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: STÆR3DH05
Í áfanganum eru ýmis atriði eldra námsefnis notuð við lausnir á verkefnum. Auk þess er bætt við ýmsu nýju efni og má þar nefna tvinntölur, fleiri gerðir deildajafna og frekari hagnýtingu heildareiknings.

Þekkingarviðmið

  • tvinntölum
  • deildajöfnum af fyrsta og öðru stigi
  • flóknari heildunar- og deildunarverkefni
  • arkarföllum
  • rúmmáli og yfirborðsflatarmáli snúða
  • bogalengd ferla

Leikniviðmið

  • vinna með tvinntölur
  • leysa flóknari heildunar og deildunar verkefni
  • finna rúmmál og yfirborðsflatarmál snúða

Hæfnisviðmið

  • takast af öryggi á við stærðfræðileg verkefni
  • lesa stærðfræðitexta með skilningi
  • geta skráð lausnir sínar skýrt og skilmerkilega, skipst á skoðunum við aðra um þær og útskýrt á viðeigandi hátt
  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu hugmynda og velja aðferð við hæfi
  • hagnýtt sér stærðfræðilega þekkingu sína til ákvarðanatöku í sérhæfðum verkefnum
  • fylgja og skilja röksemdafærslur í mæltu máli og í texta og gera sér grein fyrir notkun mótdæma til að afsanna fullyrðingar
Nánari upplýsingar á námskrá.is