líkindareikningur, tölfræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: STÆR2FJ05 eða STÆR2TS05
Fjallað er um töluleg gögn og myndræna framsetningu á þeim. Unnið með einkennistölur fyrir gagnasöfn og dreifingu. Farið verður í undirstöðuatriði líkindareiknings og rökfræði. Unnið er að hluta til með tölvuforrit við úrlausn dæma.
Þekkingarviðmið
- undirstöðuhugtökum lýsandi tölfræði
- undirstöðuhugtökum rökfræði
- einkennistölum fyrir gagnasöfn og dreifingar
Leikniviðmið
- vinna með undirstöðuhugtök lýsandi tölfræði
- vinna með líkindahugtakið
- vinna með normaldreifð gögn
- setja fram og rökstyðja niðurstöður sínar með skýrum hætti
- nota tölvuforrit við lausn viðfangsefna
Hæfnisviðmið
- klæða yrt verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa og túlka lausnina
- beita skipulögðum aðferðum á gagnrýnin hátt við lausn þrauta og verkefna
- geta skráð lausnir sínar skipulega, skipst á skoðunum við aðra um þær og útskýrt á viðeigandi hátt
- geta unnið með merkingu og tengsl hugtaka í tölfræði, rökfræði og líkindafræði
- fylgja og skilja röksemdafærslur í mæltu máli og í texta
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu hugmynda og velja aðferð við hæfi
- geta greint og hagnýtt upplýsingar á sviði stærðfræði sem birtast m.a. í fjölmiðlum hvort sem þær eru setta fram í töluðu eða rituðu máli eða í töflum
Nánari upplýsingar á námskrá.is